Að bera fé: Afklæða
kind
Aflafé:
Kindur sem stunda veiðiskap
Áhættufé:
Fífldjarfar sauðkindur
Eigið
fé: Kindur sem maður á sjálfur
Fégirnd:
Afbrigðileg kynhneigð (Að girnast sauðfé)
Fégræðgi:
Að vera einstaklega sólginn í sauðaket
Féhirðir:
Smali
Félag:
Lag sem samið er um sauðfé
Félagi:
Sá sem leggur lag sitt við sauðfé
Félegur:
Eins og sauður
Féleysi:
Þegar skorið hefur verið niður vegna
riðuveiki
Fjárdráttur:
Samræði við kind
Fjárhagur:
Einhver sem er afar laginn við sauðfé
Fjárhirslur:
Geymslur fyrir sauðfé
Fjárlög:
Mörg lög sem samin eru um sauðfé
Fjármagn:
Þegar margar ær koma saman
Fjármál:
Tungumál sauðkinda/jarm -Tóndæmi
Fjármálaráðherra:
Yfirsmali
Fjármunir:
Lausamunir í eigu sauðkinda
Fjárnám:
Skóli fyrir kindur
Fjárplógsstarfsemi:
Jarðyrkja þar sem sauðfé er beitt fyrir
plóg
Fjársöfnun:
Smalamennska
Fjárútlát:
Þegar ærnar eru settar út á vorin
Fjárvarsla:
Það að geyma kindur
Fjárveitingar:
Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum
Fjáröflun:
Smalamennska
Fundið fé:
Kindur sem búið er að smala
Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af
fjalli
Grímsá: Kind í eigu Gríms
Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa
gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum
sér
Hlutafé: Súpukjöt
Langá: Einstaklega löng kind
Lausafé: Kindur sem eru lausar á
afréttinum
Norðurá:
Kind að norðan
Opnibert
fé: Fé í eigu ríkisins
Rangá:
Kind tekin í
misgripum
Sauðburður:
Þegar handbært fé er borið að á milli staða
Sparifé:
Kindur sem ekki eru notaðar hversdags
Stofnfé:
Fyrstu kindurnar sem maður eignast
Tryggingafé:
Öruggt sauðfé
Veltufé:
Afvelta kindur
Þjórfé:
Drykkfelldar ær
Þverá:
Þrjósk kind
Fébætur:
ullarlagðar á víð og dreif í
haga
Féfletta: rýja - taka
af
Féfletting: aftekt -
rúningur
Fjárhús: banki
Fjárhúskró: skrifstofa í banka
Fjárglæfrar: gapalegur rekstur á fé í
fjöllum
Fjárhaldsmaður: maður sem heldur í
kind, m.ö.o. í-halds-maður
Fjárstreymi (jákvætt): fjárhópur
sem rekst undan manni
Fjárstreymi (neikvætt): rollur sem æða á móti
manni
Lánsfé: tví- og þrílembdar ær sem
koma sjálfar heim daginn fyri
slátrun
Vegafé: stakar kindur í
vegkantinum....
Að
giftast til fjár: Að giftast bónda
Uppbótarfé:
Seinni tvílembingurinn.
Auka
fjármagn: Þrílembingurinn
Þenslufé:
Fjórlembingar
Óæskilegt
viðbótafjármagn: Aðkomukindur
Fjárþröng:
Rétt (þar sem
þrengt er að fé)